fitupukinn.bloggar.is
Þetta gengur :)
Dagarnir ganga eins og í sögu, bakaði meira að segja í gær handa krökkunum og freistaðist ekki, merkilegt nokk. Er farin að borða ógrynni af ávöxtum og finnst voðalega gott að grípa í þá þegar sykurlöngunin leggst yfir mig.
Í kvöld ákvað ég að skipta út sjeik og fá mér kvöldmat, mjög hollan að sjálfsögðu þ.e. mikið grænmeti og kjúklingabringu og men hvað það var ljúft ![]()
En ég er alveg rosalega hissa á sjálfri mér á hversu mikinn viljastyrk ég hef varðandi nammið en ég laumast ekki einu sinni til þess að fá þó enginn sjái til ![]()
Hef ekki sett mér nein svona skemmri markmið en núna er ég að pæla í hvort það sé nokkuð óraunhæft hjá mér að vilja vera komin niður fyrir 60 kílóin í maí? Er að fara á árshátíð þá og langar svo til að líða vel og vera nokk ánægð með sjálfa mig í fína kjólnum mínum ![]()
Þá er bara að bretta upp ermar og halda áfram á sömu braut og síðustu daga
over and out
Svo ánægð
oohh er svo glöð að ég bara verð að koma þessu frá mérÁkvað í rælni að stíga á vigtina hjá mömmu og pabba og meira að segja eftir að hafa borðað djúsí máltíð í tilefni af konudeginum og hvað haldiði? Vigtin sýndi 2 kíló niður sem þýðir að mín skemmtilega vigt sýndi 4,5 kílóum meira. Vá hvað ég er glöð og nú held ég sko ótrauð áfram!
kv. fitupúkinn
Fyrsta færslan á mínu fyrsta bloggi
Jæja þá er maður kominn með feitabollubloggsíðu en það er eitthvað sem ég bjóst aldrei við að gera. ![]()
En hvað um það þá hafði ég hugsað mér að notast við þetta til að halda mér við efnið, skrifa niður mínar hugsanir, árangur og þess háttar. Veit ekki hvort þetta eigi eftir að hjálpa mér nokkuð en af hverju ekki að reyna? Einnig hef ég ekki hugmynd um hvort þetta er eitthvað sem eigi eftir að endast en það kemur allt í ljós.
Kannski ég komi því líka að af hverju ég ákvað að prófa þennan vettvang, ég s.s. byrjaði í átaki eða á LR-kúrnum fyrir nokkru síðan og er búin að ganga alveg þvílíkt vel en markmiðið er að losa mig við um 10 kg. Þegar kom svo að því að vigta í fyrsta sinn haldiðið ekki að vigtin hafi farið upp um 2,5 kg.
mig langaði til að grenja.
Jæja ætli ég segi þetta ekki nóg í bili svona sem fyrstu færsluna ![]()
kveðja frá einni í baráttunni.